Dettifoss by Sveinbjörn Sveinbjörnsson — Lyrics

Sveinbjörn Sveinbjörnsson Icelandic Secular Lieder Staff notation

Full Lyrics

Þar sem aldrei á grjóti gráu gullin mót sólu hlæja blóm og ginnhvítar öldur gljúfrin háu grimmefldum nísta heljarklóm, kveður þú, foss, minn forni vinur, með fimbulrómi sí og æ; undir þér bergið sterka stynur, sem strá í næturkuldablæ. Kveður þú ljóð um hali horfna og hetjulíf á fyrri öld; talar þú margt um frelsið forna og frægðarinnar dapra kvöld. Ljósgeislar á þér leika skærir, liðnir frá sól í gegnum ský; regnbogalitir titra tærir tröllauknum bárum þínum í. Ægilegur og undrafríður ertú, ið mikla fossaval; aflrammur jafnt þú áfram líður í eyðilegum hamrasal. Tímarnir breytast; bölið sára það brjóstið slær, er fyrr var glatt; er alltaf söm þín ógnarbára ofan um veltist gljúfrið bratt. Stormarnir hvína, stráin sölna, stórvaxin alda rís á sæ, á rjóðum kinnum rósir fölna í reginköldum harmablæ, brennandi tár um bleikan vanga boga, því hjartað vantar róen alltaf jafnt um ævi langa aldan í þínu djúpi hló. Blunda vil ég í bárum þínum, þá bleikur loksins hníg ég nár, þar sem að enginn yfir mínu önduðu líki fellir tár; og þegar sveit með sorgarhljóði syngur döpur of ann´ra ná, í jörmunefldum íturmóði yfir mér skaltu hlæja þá.

Download the sheet music

Dettifoss

Dettifoss

By Sveinbjörn Sveinbjörns...
Staff
Icelandic
17 pages
0 Downloads
Secular Lieder
0 0

More lyrics you may want